Um okkur

Við fræðum okkur stöðugt til að geta frætt aðra, því árangur byrjar með þekkingu og hugrekki til að breyta.

Við byggjum á reynslu

Við byggjum á stjórnunarreynslu og þekkingu á sviðum sem skipta máli fyrir árangur þinn. Teymið okkar býr yfir mikilli reynslu og hefur starfað með stórum og smáum skipulagsheildum, á opinberum og almennum markaði, hér á landi auk alþjóðlegrar reynslu.

Við vinnum með þér að lausnum sem byggja á reynslu, fagmennsku og kjarki sem skilar þér raunverulegum árangri.

Stöðugur vöxtur,
grunnurinn að árangri

Hjá Kjarki ráðgjöf trúum við á stöðugan vöxt, fyrir þig, teymið þitt og skipulagsheildina alla. Með framsýn, heiðarleika og kjark styðjum við þig í að takast á við áskoranir, þróa hæfni og ná langtímaárangri.

Við fræðum okkur stöðugt til að geta frætt aðra, því árangur byrjar með þekkingu og hugrekki til að breyta. Með yfir 20 ára reynslu byggjum við á traustum grunni en horfum alltaf fram á veginn, á þróun, nýsköpun og betri framtíð.

Teymið okkar

Við styðjum við þinn vöxt.

Berglind Björk Hreinsdóttir

Eigandi og stjórnendaráðgjafi

Berglind Björk er reyndur stjórnandi, markþjálfi og sérfræðingur í mannauðsstjórnun með um 20 ára reynslu á því sviði. Hún er með grunnháskólamenntun í sálfræði og félagsráðgjöf, gráðu í mannauðsstjórnun og MPM gráðu. Berglind Björk hefur stýrt mannauðsmálum bæði hjá skipulagsheildum á opinbera og almenna markaðnum. Hún hefur leitt stefnumótun og innleitt ferla sem bæta vinnustaðamenningu og auka starfsánægju. 

Berglind Björk hefur starfað lengi sem stjórnendamarkþjálfi og hefur sérhæft sig í áfallastjórnun, sáttamiðlun, vinnustaðagreiningum með áherslum á EKKO og er viðurkenndur úttektaraðili hjá Vinnueftirlitinu á sálfélagslegum þáttum vinnuverndar. Þessar áherslur gerir hana að öflugum ráðgjafa þegar kemur að því að styðja við heilbrigða og árangursríka vinnustaðamenningu. 

Harpa Þrastardóttir

Eigandi og stjórnendaráðgjafi

Harpa er reyndur stjórnandi og markþjálfi með meistaragráður í iðnaðarverkfræði og í stjórnun og forystu með áherslu á mannauðsstjórnun. Hún hefur fjölbreytta reynslu úr íslenskum stórfyrirtækjum, alþjóðlegu verktakafyrirtæki, opinberum rekstri auk þess að hafa verið í eigin rekstri í nokkur ár. Hún hefur reynslu af stefnumótun, ferlastjórnun, umbótavinnu og stýringu fjölbreyttra teyma, ásamt lausn krefjandi starfsmannamála.

Harpa hefur unnið sem gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri, innleitt og stýrt vottuðum stjórnkerfum. Hún býr yfir reynslu í áhættustjórnun, breytingastjórnun, LEAN og tækniþróun.