Það þarf kjark til að ná raunverulegum árangri


Við hjálpum fyrirtækjum að setja skýra ramma með ferlum sem virka, efla samskipti og skapa vinnustaði þar sem fólki líður vel og árangur næst.


Svona hjálpum við fyrirtækjum að ná árangri


Við setjum upp lausnir sem virka í raunveruleikanum

Við skoðum samspil ferla, fólks og samskipta og greinum hvar flöskuhálsar, óskýr ábyrgð eða misskilningur hafa áhrif á reksturinn.


Við styrkjum stjórnendur í hlutverki sínu

Við hjálpum stjórnendum að taka skýrari ákvarðanir, efla samskipti og leiða teymi sem vinna betur saman. Skýrari forysta skilar betri niðurstöðum.​


Það krefst kjarks að horfa á það sem má betur fara

Við vinnum með það sem skiptir máli svo árangur verði ekki tilviljun. Ekki bara hvað er til staðar, heldur hvað virkar og hvað ekki.

Ef þú vilt frekari upplýsingar um þjónustuna okkar getur þú bókað frítt samtal á kjarkur@kjarkurrad.is eða haft samband við Berglindi 891-6990 eða Hörpu 787-1808.